Námskeið
10.06.202413:00–16:00

Úrherbergiíherbergi
sumarnámskeiðfyrir9-12árakrakka

„Úr herbergi í herbergi – hannaðu híbýli í sumarfríinu!“

Hönnunarsafn Íslands býður upp á 5 daga sumarnámskeið fyrir börn á aldrinum 9-12 ára.

Námskeiðið fer fram dagana 10.-16. júní, milli kl 13-16.

Skráning fer fram á tix. is, en námskeiðsgjaldið er 22.500 kr:

https://tix.is/is/event/17569/-ur-herbergi-i-herbergi-sumarnamskei-i-honnunarsafninu/

Um námskeiðið:

Þátttakendur setja sig í spor hönnuðar og spreyta sig á ólíkum aðferðum í hönnun. Þau hanna heimili fyrir ímyndaða íbúa með tilliti til persónuleika og þarfa. Hver dagur verður með áherslu á ólík herbergi sem samansett mynda heild í lok námskeiðisins.

Verkefnið miðar að því að virkja sköpunarkraftinn, hugsa með höndunum, kynnast skala og módelgerð. Þátttakendur fá að taka módelin með sér heim síðasta daginn.

Námskeiðið leiðir hönnuðurinn Kristín María Sigþórsdóttir en það hefur notið mikilla vinsælda.