
Hvernig myndir þú hanna heimili fyrir geimfara sem á 3 kanínur fyrir gæludýr og elskar að baka í frístundum?!
Þátttakendur fá afhent módel af húsi sem þau hanna inn í fyrir ímyndaðan íbúa með tilliti til persónuleika hans og þarfa. Nemendur fá að spreyta sig á aðferðum í innanhússarkitektúr og húsgagnahönnun. Námskeiðið miðar að því að setja sig í spor hönnuðar, virkja sköpunarkraftinn, hugsa með höndunum, sjá möguleika, kynnast skala og módelgerð.
Leiðbeinandi: Auður Ösp Gilsdóttir
Dagsetningar: 23.-26. júní
Tími dags: 13:00-16:00
Staðsetning: Hönnunarsafn Íslands, 2. hæð
Verð: 27.500 kr
Skráning á Abler HÉR