25.06.202620:00–21:30

ArkitektagangaumArnarnesið

Í tilefni af 50 ára afmæli Garðabæjar er boðið upp á göngu um Arnarnesið með Pétri Ármannssyni arkitekt og Sigríði Sigurjónsdóttur forstöðumanni Hönnunarsafns Íslands. Þátttaka er gjaldfrjáls en miðað er við hámark 40 þátttakendur sem þurfa að skrá sig hér:

https://forms.office.com/e/48U069rDA6

Arnarnesið er fyrsta skipulagða hverfið þar sem kveðið var á um að byggingar skyldu hannaðar af arkitektum. Á vestanverðu nesinu er að finna perlur úr íslenskri byggingarlistasögu frá sjöunda áratugnum, meðal annars einbýlishús eftir Manfreð Vilhjálmsson, Helga Hjálmarsson og Gunnar Hansson.

Lagt verður af stað frá bílastæðinu við hliðina á Mávanesi 1.