
Langar þig að prófa að vera fatahönnuður í fjóra daga? Á sumarnámskeiði í Hönnunarsafninu læra krakkar að hanna og búa til sín eigin föt frá grunni. Við prófum okkur áfram með snið, skraut og skemmtilegar lausnir sem gera hverja flík einstaka. Engin fyrri reynsla nauðsynleg – bara sköpunargleði og hugmyndaflug!
Leiðbeinandi: Guðrún Sigurjónsdóttir
Dagar: 4.-7. ágúst
Tími dags: 13:00-16:00
Verð: 27.500 kr
Staðsetning: Hönnunarsafn Íslands, 2. hæð