Saumó er hluti af sýningaröðinni „Heimsókn“ á Hönnunarsafni Íslands og viðfangsefnið er hlutverk og form saumaklúbba nú á tímum. Gestir upplifa sig sem „flugu á vegg“ og gægjast inn í ólíka klúbba. Safneignin er skoðuð í nýju ljósi með því að setja íslenska hönnunarsögu og heimilið í samhengi við handverk og saumaklúbba. Sigríður Sigurjónsdóttir forstöðumaður safnsins sér um leiðsögnina.
Frítt er inn á hádegishittinginn