14.11.202616:00

JesEinarÞorsteinssonarkitekt

Jes Einar Þorsteinsson (1934-2024) nam myndlist við Académie de la Grande Chaumière og arkitektúr við École nationale supérieure des Beaux-Arts í París á árunum 1954–1967. Hann hannaði fjölda bygginga, flestar á sviði íþrótta og heilsugæslu. Meðal þekktari verka hans eru Skeiðalaug í Brautarholti og heilsugæslan og tónlistarskólinn á Seltjarnarnesi.

Í verkum Jes Einars eru greinileg brútalísk áhrif. Notkun hans á hrárri steypu má rekja til námsáranna í Frakklandi og áhuga hans á Le Corbusier, sem hann nefndi meðal sinna eftirlætisarkitekta, ásamt Tadao Ando og Steven Holl.

Sérstaða Jes Einars birtist meðal annars í nálgun hans á mótun rýmis. Ólíkt mörgum samtíma arkitektum sem unnu í anda módernismans þar sem hið frjálsa plan með sýnilegu burðarvirki var algengt, hafði Jes Einar frekar sjálfa rýmismótunina að leiðarljósi. Burðarvirkið fylgdi á eftir. Með slíkri nálgun brotnar útlit húsanna upp og opnanir myndast á óvæntum stöðum.

Á sýningunni eru tekin fyrir sjö ólík verkefni sem endurspegla helstu höfundareinkenni arkitektsins.

Sýningarstjórn: Haukur Hafliði Nínuson og Katrín Heiðar

Ljósmyndun: Marinó Thorlacius

Sýningin hlaut styrk úr Safnasjóði