Fjölskyldusmiðja
29.12.202613:00–15:00

Áramótahattasmiðja!
FjölskyldusmiðjameðH_A_G_E

Hvernig áramótahatt ætlar þú að hafa á höfði þegar þú kveðjur árið 2026 og stígur inn í nýja árið 2027?! Verður formið keilulaga, kringlótt eða kassalaga eins og pípuhattur? Hvaða efni velurðu þér, glansandi og glitrandi eða matt og náttúrulegt?

Áramótahattasmiðjan er orðin árviss hefð á Hönnunarsafninu. Hún er leidd af hattagerðameisturunum Önnu Gullu og Harper sem mynda hönnunarteymið H_A_G_E Studio. Þau sérhæfa sig í hönnun og handverki hatta, með áherslu á náttúrulegan efnivið. Hage eru með bækistöðvar sínar í Kölingerad í Svíþjóð og Reykjavík.

Smiðjan er hluti af mánaðarlegri fjölskyldudagskrá Hönnunarsafnsins á vegum Menningar í Garðabæ. Aðgangur er ókeypis og opinn öllum.