Leiðsögn
13.10.201913:00–14:00

SKRÁNINGÁKERAMIKSAFNI

Anna Eyjólfsdóttir, myndlistarmaður og safnari verður með leiðsögn ásamt Þóru Sigurbjörnsdóttur safnafræðingi Hönnunarsafnsins, sunnudaginn 13. október kl. 13–14.

Anna Eyjólfsdóttir, myndlistarmaður hóf söfnun á leirmunum eftir íslenska listamenn árið 1979. Árið 2017 samanstóð safnið af tæplega 2000 gripum, sem spanna tímabilið frá 1932 til dagsins í dag. Þetta er stærsta einstaka keramíksafn landsins. Hönnunarsafn Íslands eignaðist það með styrk frá Bláa Lóninu. Síðustu mánuði hefur starfsfólk Hönnunarsafns skrásett keramíkgripina í sýningarsal safnsins, en skráning er viðamikill hluti af starfsemi safna. Hér geta gestir fylgst með þegar hlutir eru teknir upp úr kössum, ljósmyndaðir, skráðir í safnmunaskrá og þeim loks pakkað eftir kúnstarinnar reglum. Markmiðið er að hluturinn varðveitist en sé um leið aðgengilegur ásamt þeim upplýsingum sem til eru um hann. Skráning er spennandi ferli sem víkkar sjóndeildarhringinn, kveikir neista og tengingar, hugmyndir, samtöl og minningar.

Viðburðurinn er í boði Hönnunarsafns Íslands.