Fyrirlestur
24.11.201913:00

ÍSLENSKLEIRLISTARSAGAFRÁ1930–1970

Í tengslum við skráningu á keramiksafni Önnu Eyjólfsdóttur í Hönnunarsafni Íslands undanfarna mánuði hefur safnið fengið Ingu Sigríði Ragnarsdóttur til þess að halda fyrirlestur þar sem saga íslenskrar leirlistar frá árinu 1930–1970 er rakin. Fyrirlesturinn verður haldinn sunnudaginn 24. nóvember nk. kl. 13. Inga Sigríður vinnur nú ásamt Kristínu G. Guðmundsdóttur, listfræðingi, að rannsókn á þessu tímabili og fyrirhugað er að gefa út bók á næsta ári í tilefni af því að þá verða 90 ár liðin frá því að framleiðsla hófst á leirmunum á Íslandi í Listvinahúsinu.

Inga Sigríður útskrifaðist úr keramikdeild Myndlista- og handíðaskólans og fór síðan í framhaldsnámi til Munchen í keramikdeild og skúlptúr. Hún hefur starfað sem leirlistamaður og kennt sem stundakennari við Myndlistarskólann í Reykjavík. Inga Sigríður er dóttir Ragnar Kjartanssonar leirkerasmiðs, eins og það var kallað, sem lærði hjá Guðmundi frá Miðdal og var einn af meðstofnendum Funa og seinna einn af stofnendum Glit.