
Catherine Oxley sem hefur dvalið í vinnustofudvöl í safninu undanfarnar vikur og galdrað fram ómótstæðilega falleg pappírsblóm segir frá verkum sínum og hvernig það kom til að hún sérhæfði sig í þessu einstaka handverki.
Hádegishittingur með hönnuði er haldinn einu sinni í mánuði. Boðið er upp á kaffi og kleinur og afslappað andrúmsloft.
Frítt er inn á viðburðinn.