Sögustundfyrirfjölskyldur
17.10.202613:00–15:00

Sögurhlutanna
SögustundmeðIngibjörguFríðuogHalldóriEldjárn

Sögustund fyrir fjölskylduna með Ingibjörgu Fríðu Helgadóttur sem hefur getið sér gott orð fyrir útvarpsþættina Þjóðsögukistuna og Í ljósi krakkasögunnar á RÚV. Í þessari sögustund leiðir hún okkur inn í heim vöruhönnunar frá glænýju sjónarhorni. Vissir þú að það var barn sem fann upp á trampólíni? Hvaða fleiri óvæntar sögur tengjast hlutum í hversdeginum okkar? Við skoðum hönnun út frá ævintýrum, þjóðsögum og sönnum sögum. Með Ingibjörgu Fríðu er Halldór Eldjárn sem skapar seiðmagnaða hljóðmynd og flytur lifandi tónlist. Viðburðurinn er liður í Barnamenningarhátíð Garðabæjar.