
Thelma Björk útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2005. Í framhaldinu fór hún í nám í Ecolé Lesage Embroderie í París þar sem hún sérhæfði sig í útsaumi. Hún er einnig menntaður og virkur jóga- og hugleiðslukennari.
Þessi bakgrunnur kjarnast í verkum Thelmu Bjarkar sem nýtir handavinnu til tjáningar og listsköpunar. Hún sækir innblástur til formæðra sinna og í persónulegar minningar. Hún vinnur með flæði og skynjun í gegnum handverk og hugleiðslu og tengir ferlið við núvitundarvakningu 21. aldarinnar. Útsaumur er seinlegt ferli og krefst útsjónarsemi og nákvæmni, sem skilar sér í hugarró og valdeflingu. Með sjálfbærni að leiðarljósi mun hún í vinnustofudvöl sinni skapa nýja upplifun á handverki og nytjahlutum.