Innflutningsboð
29.05.202616:00

ThelmaBjörk

Við bjóðum ykkur velkomin í innflutningsboð í tilefni af upphafi vinnustofudvalar Thelmu Bjarkar Jónsdóttur. Thelma er fatahönnuður, textíl-, jóga- og hugleiðslukennari sem hefur sérhæft sig í handgerðri höfuðfatagerð til þess að viðhalda minningum og handverkshefðinni. Hún nýtir handavinnu til tjáningar og listsköpunar, tengingar hugar og handar, nákvæmni og núvitundar, innblásin af formæðrum sínum og persónulegum minningum fortíðar. Með sjálfbærni að leiðarljósi mun hún í vinnustofudvöl sinni skapa nýja upplifun á handverki og nytjahlutum. Við hlökkum til að taka á móti Thelmu í vinnustofudvöl sína, og ykkur öllum í innflutningsboðinu!