
Thelma Björk, fata- og textílhönnuður hefur verið í vinnustofudvöl í safninu í sumar. Hún segir frá dvölinni, verkunum sem hafa orðið til og hvernig hún vinnur með handverk, sögu, hugleiðslu og sköpunarkraftinn. Helsta viðfangsefnið eru stólar sem hafa “blómstrað upp á nýtt” í gegnu útsaum og samstarf við bólstrarann Ásdísi Birgisdóttur. Hér hafa líka sprottið upp samtöl og samverustundir þar sem fólk hefur verið duglegt að fá sér sæti og gefa sér tíma til að staldara við.
Í vinnustofudvöl á Hönnunarsafninu fá hönnuðir tækifæri til að vinna að ákveðnum markmiðum sem þeir setja sér. Gestir fá að kynnast aðferðafræði hönnunar, eiga spjall og geta verslað hönnuanrvörur beint frá hönnuðinum. Starfsfólk safnsins öðlast djúpa innsýn inn í handverk og hugarheim hvers hönnuðar en hönnuðir dvelja í um þrjá mánuði í vinnustofudvöl.