08.02.2013–26.05.2013

INNLITÍGLIT

Hönnunarsafn Íslands opnar sýningu á Safnanótt á völdum munum frá árunum 1958 til 1973 úr sögu Leirbrennslunnar Glit hf. Á sýningunni er lögð áhersla á þá staðreynd að þrátt fyrir flókna sögu Glit á löngum starfstíma, voru menn fyrsta rúma áratuginn einbeittir í því að nota íslenskan leir og íslensk jarðefni, sérstaklega hraunið, í framleiðsluna.

Glit var um margt langt á undan sinni samtíð og markar djúp spor í íslenskri leirlistarsögu, á tíma þegar íslenskur listiðnaður var í frumbernsku. Saga fyrirtækisins er kaflaskipt en Leirbrennslan Glit hf. var formlega stofnuð 10. júní 1958 af þeim Einari Elíassyni verslunarmanni, Pétri Sæmundsen, þáverandi formanni Félags íslenskra iðnrekenda og síðar bankastjóra Iðnaðarbankans, og Ragnari Kjartanssyni, myndhöggvara og leirlistamanni. Stofnfundurinn átti sér stað á kontór lögfræðingsins Páls S. Pálssonar í  Bankastræti 7. Leirbrennslan var starfrækt á Óðinsgötu 13b allt til 1971 þegar ákveðið var að stækka fyrirtækið og flytja upp á Höfða.  Gjarnan er vísað í starfstímann á Óðinsgötu sem „Gamla Glits“ og tímans uppi á Höfða sem „Stóra Glits“.

Listrænn metnaður stjórnenda Glit var mikill þegar fyrirtækið var stofnað og hugmyndir um að færa út kvíarnar, að hefja útflutning, gerðu það að verkum að hvergi var slegið af kröfum um að standast fyllilega allan samanburð. Margir af okkar þekktustu listamönnum á 20. öld unnu hjá Glit til lengri eða skemmri tíma og minnast þess tíma sem mikilvægrar „listrænnar fósturmiðstöðvar“ þegar Ragnar sá um framleiðsluverkstæði Glit við Óðinsgötu. Breytingar á áherslum og vilji til að auka framleiðslugetu og tæknivæða hana leiddi til þess að Glit breytti um gír og iðnvæddist og tók framleiðslan nýja stefnu úr lista- og hönnunarsögu Íslands inn í sjálfa iðnaðarsögu Íslands.
Á sýningunni er fjöldi muna frá Glit, bæði af Óðinsgötunni (starfrækt þar frá 1958-1971) og ofan af Höfða. Þá verða skil í framleiðslunni þegar listræn stjórnun fluttist frá Ragnari Kjartanssyni til þýska leirlistamannsins Gerhard Schwarz, sem tók við af Ragnari árið 1968.

Auk muna frá Glit verður íslenskur leir sýndur og sagt frá sögu íslenskrar leirtöku hjá Glit. Íslenskir leirlistamenn munu renna á sýningunni á völdum dögum. Fylgist með á Facebook.

Verið velkomin!


Sýningarnefnd: Aldís Bára Einarsdóttir, Gylfi Einarsson, Harpa Þórsdóttir, Inga Ragnars, Sigrún Einarsdóttir
Ritun heimildar um sögu Glits 1958-1970: Hanna Guðlaug Guðmundsdóttir
Ritun heimildar um íslenska leirinn: Inga Ragnars
Ritun frásagnar um leirtökuna: Gylfi Einarsson
Ritun um rennslu leirs: Árdís Olgeirsdóttir
Almenn textavinnsla: Harpa Þórsdóttir, Þóra Sigurbjörnsdóttir

Sýningararkitekt: Hlynur Axelsson
Uppsetning og smíði: Hlynur Axelsson, Þóra Sigurbjörnsdóttir
Umsjón með innsöfnun muna: Þóra Sigurbjörnsdóttir
Grafísk hönnun: Ámundi Sigurðsson
Lýsing: Aðalsteinn Stefánsson
Forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands / Museum director: Harpa Þórsdóttir
Stjórn Hönnunarsafns Íslands / Museum Board: Erling Ásgeirsson, Klara Lísa Hervaldsdóttir, Helgi Pétursson, Margrét Björk Svavarsdóttir forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar