Sem börn lærum við í gegnum leik og fyrir mörg okkar var heimili Barbie það fyrsta sem við sköpuðum og innréttuðum. Leikurinn sjálfur hófst með því að velja rétta kjólinn og réttu fylgihlutina svo Barbie gæti leikið sitt hlutverk – fötin sköpuðu dúkkuna.
Barbie er nýjasti gesturinn á fastri sýningu safnsins Hönnunarsafnið sem heimili, yfirlitssýningu muna úr safneign Hönnunarsafnsins sem settir eru fram innan grunnmyndar af heimili.
Barbie hefur gert sig heimakomna í öllum rýmum sýningarinnar – íklædd sérsaumuðum fatnaði eftir fjölbreyttan hóp íslenskra fatahönnuða – og minnir okkur á að við erum aldrei of gömul til að leika okkur.
Fatahönnuðirnir sem taka þátt eru:
Guðmundur Magnússon stofnandi Vecct
Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir fyrir Kormák og Skjöld
Sýningarstjóri: Hera Guðmundsdóttir