ELDBLÓMXÞYKJÓ

Geta blóm sprungið út á himninum? Getur manneskja breytt sér í flugeld? Eru tengsl á milli flugelda og blóma?

Fræðsluverkefnið „Hvernig dans varð vöruhönnun“ opnar augu nemenda fyrir því hvernig frjóar hugmyndir geta hoppað á milli listforma og hönnunargreina, allt frá dansverkum til flugeldasýninga og vöruhönnunar. Smiðjan er leidd af sviðslistakonunum og hönnuðunum Sigríði Soffíu Níelsdóttur og Sigríði Sunnu Reynisdóttur. Áhersla er lögð á að kynna frumkvöðlahugsun, tilraunagleði og þverfaglegt samstarf.

Heimsóknin höfðar til allra skilningavitanna en í henni fléttast saman leiðsögn um fastasýninguna „Hönnunarsafnið sem heimili“ og einleikurinn „Eldblóm“. Heimsóknin er brotin upp með ilmferðalagi og dansstund og lýkur svo með skapandi smiðju hjá ÞYKJÓ hönnunarteyminu.

Umsagnir kennara:

„Þetta kom sjálfri mér svo skemmtilega á óvart, það var svo margt sem ég hafði ekki heyrt um áður eins og tengsl flugelda og blóma – ég mun aldrei aftur sjá flugelda sömu augum!“

Umsagnir nemenda:

„Þetta er skemmtilegasta vettvangsferð sem við höfum farið í!“

„Þetta er skemmtilegra en handbolti!“