Opnun
04.12.202616:00

Skráninghversdagsins
SigrúnGuðmundsdóttir

Sigrún Guðmundsdóttir er þekkt fyrir skapandi textílkennslu og notkun á óhefðbundnum efnivið. Hún starfaði sem list- og verkgreinakennari í 35 ár, síðast við Menntasvið Háskóla Íslands í 22 ár. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga á sviði textíllistar.
Sýningin er á Pallinum í Hönnunarsafni Íslands og stendur til 10. janúar.

Sigrún byrjaði að vinna smákort í kringum 1990. „mig vantaði eitthvað til að grípa í. Á heimili mínu hefur alltaf verið fjölbreyttur efniviður og lá því beinast við að nýta það sem hendi er næst og flokkast yfirleitt sem rusl. Ég var alltaf ákveðin í því að nota nálina, sauma í kortin með örfínni nál. Myndefnið mótast af efniviðnum. Kortin verða til í dagsins önn, árið um kring.“ Skráning hversdagsins.