27.05.2010–05.09.2010

ÚRHAFITILHÖNNUNAR

Efnisval er mikilvægur þáttur í allri hönnun og sköpun. Oft eru það eiginleikar efnisins sem veita hönnuðum innblástur en efnið getur einnig verið sá þáttur sem hamlar og takmarkar þróun og vinnu. Sýningin Úr hafi til hönnunar sýnir okkur hráefni sem íslenskir og erlendir hönnuðir og listhandverksfólk hafa farið að nota í nokkuð ríkum mæli á síðustu árum. Roðið, eða fiskleðrið eins og farið er að kalla roðið þegar búið er að súta það, er feiknarsterkt. Það er þunnt og þjált og hægt að lita í ótal afbrigðum og velja á það ólíkar áferðir. Á sýningunni er sýndur vinnsluferill hráefnisins í sútunarverksmiðju Sjávarleðurs á Sauðárkróki ásamt því að sýndir eru valdir munir sem endurspegla fjölbreytileika efnisins og möguleika þess.

Elstu hlutirnir á sýningunni eru roðskór úr hlýra og steinbítsroði sem minna á að roðið var ekki aðeins borðað fyrr á tíðum heldur einnig þurrkað og sniðið í skó. Steinbítsroð mátti nota til bókbands og á sýningunni má einnig sjá húsgögn með þessu slitsterka áklæði. Nytjahlutir svo sem skálar og púðar hafa verið áberandi í íslensku handverki og skór eftir íslenska og erlenda skóhönnuði endurspegla þá staðreynd að fiskleður er sterkt og endingargott. Fatnaður eftir íslenska og erlenda hönnuði er einnig sýndur og má þar sjá bæði klassísk snið og djarfa meðhöndlun á leðrinu. Sá gripur sem kemur einna mest á óvart á sýningunni er gítartaska fyrir 6 flöskur af Dom Pérignon Rosé árgangskampavínum sem hönnuð var af Karli Lagerfeld og er úr bleiku karfaroði sem valið var af kostgæfni fyrir þennan lúxusgrip.

Í íslenskri náttúru má finna gjöfulan efnivið sem allar skapandi stéttir hafa nýtt sér á hverjum tíma. Fiskurinn er í raun engin undantekning þar á. Reyndar er grunnhráefnið sem verksmiðja Sjávarleðurs verkar, að mestu leyti flutt inn, en sú staðreynd vegur ekki á móti því að iðnaðurinn er rekinn með hreinni orku og að úr lítilfjörlegu roði er verkað leður sem telst til hágæða. Hráefni sem annars hefði verið kastað. Endurnýting er stórt hugtak í allri hönnun og rík áhersla er lögð á umhverfisvernd. Það er merkilegt að við kunnum að endurnýta þetta hráefni og að í landinu sé til svo sértæk þekking í iðnaði á sútun fiskroðs  sem margir hlutirnir á sýningunni bera vitni um.

Harpa Þórsdóttir