10.02.2012–20.05.2012

SJÁLFSAGÐIRHLUTIR

Tilgangur sýningarinnar Sjálfsagðir hlutir er að kynna efni og sögu þekktra og oft klassískra hluta í hönnunarsögunni. Nær allt sem við snertum hefur verið hannað á einhvern hátt. Á sýningunni  eru sýndir nokkrir af þeim hlutum sem við lítum á sem sjálfsagða í daglegu lífi og efnisvali þeirra gerð skil. Augnlinsur, tannstönglar, klósett og bréfaklemmur eru dæmi um hluti sem gegna allir á sinn hátt mikilvægu hlutverki og hafa jafnvel sannað gildi sitt sem „klassískir“ á þann hátt að endurnýjun eða endurhönnun virðist óþörf þegar við virðum þá fyrir okkur í dag.

Tækninýjungar, forvitni og útsjónarsemi einstaklinga hafa oftar en ekki haldist í hendur við að skapa eitthvað nýtt og óvenjulegt úr ýmsum hráefnum. Hlutverk hönnuða er að einfalda líf okkar. Þeir endurbæta og þróa eldri hönnun með það að leiðarljósi að gera hana betri. Hönnuðir hanna verkfærin sem hjálpa okkur að leysa verkefni daglegs lífs. Gripirnir á sýningunni eiga sér oft á tíðum sögu sem kemur á óvart, þar sem tilviljun og hugmyndaauðgi eiga stóran þátt í að hluturinn verður til. Hönnun snýst ekki einungis um að leysa fyrirliggjandi vanda, stundum leysir hún úr vanda sem við vissum jafnvel ekki að væri til staðar, líkt og tannstöngullinn gerði á sínum tíma.

Sýningunni er skipt í fjögursvæði eftir þeim hráefnum sem gripirnir eru gerðir úr: plasti, við, leir og málmi. Á hverju svæði er hægt að kynna  sér hvert hráefni og eiginleika þess. Hægt verður að snerta hluti á vinnusvæðunum og prófa þá, því lögð er áhersla á virka aðkomu gesta.

Sýningarstjórar: Árdís Olgeirsdóttir og Þóra Sigurbjörnsdóttir.