Vinnustofudvöl
16.06.2022–31.08.2022

SnorriFreyrVignissonogLáreyHuldRóbertsdóttir
módelsmiðir

Undanfarna mánuði hefur Hönnunarsafn Íslands staðið fyrir skráningu á verkum Högnu Sigurðardóttur, arkitekts (1929 – 2017).

Högna bjó og starfaði í Frakklandi eftir útskrift frá École Nationale Supérieure des Beaux-Arts í París. Fimm einbýlishús eftir hana voru reist á 7. áratugnum á Íslandi. Þekktast þeirra er Bakkaflöt 1 í Garðabæ. Húsið var valið eitt af 100 merkustu byggingum 20. aldar í norður- og mið Evrópu í útgáfu alþjóðlegs yfirlitsrits um byggingarlist. Högna hannaði einnig Kópavogslaug og svæðið í kringum hana, en einungis hluti af því verkefni varð að veruleika.

Við skráninguna kom í ljós fjöldi áhugaverðra teikninga sem urðu aldrei að byggingum. Tilgangur verkefnisins er að rýna í þessar teikningar og gera vönduð módel eftir völdum teikningum. Teikningarnar sem hafa verið valdar eru Gnitavegur (nú Gnitanes) 10 í Skerjafirði, teiknað 1967, og Fjólugata 29 í Vestmannaeyjum, frá 1961.

Snorri Freyr Vignisson og Lárey Huld Róbertsdóttir, sem útskrifuðust með BA-gráðu í arkitektúr frá Listaháskóla Íslands 2022, eru módelsmiðirnir.

Verkefnið er styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna.