14.01.2011–13.03.2011

HÖNNUNARSAMKEPPNIUMHÚSGÖGNÍHÖRPU

Síðastliðið sumar var efnt til hönnunarsamkeppni um tillögur að húsgögnum í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík. Óskað var eftir tillögum að bekkjum fyrir börn og fullorðna, framhliðum á færanlega bari, færanleg borð í almenningsrými auk ræðupúlta og framhliða á ráðstefnuborð í ráðstefnusali og fundarherbergi hússins. Um er að ræða hönnun fyrir þau rými þar sem tekið er á móti gestum, við aðalinngang á jarðhæð, á svölum framan við salina og í ráðstefnu- og fundarsali. Í samkeppnisgögnunum var lögð áhersla á að keppendur kynntu sér hönnun og efnisval hússins í heild sinni og hefðu til hliðsjónar við hönnun þess húsbúnaðar sem keppt var um.

Húsið sækir form sitt til íslenskrar náttúru en það er hannað af arkitektastofunum Henning Larsen Architects í Danmörku og Batteríinu arkitektar í Hafnarfirði. Litadýrðin frá íslenskri náttúru er ríkur hluti af innblæstrinum við hönnun hússins og þær andstæður sem birtast svo oft í náttúru Íslands koma víða fram. Marghliða glerhjúpur, svartir sjónsteyptir veggir og stórir einsleitir gólffletir eru táknrænir fyrir víðáttuna, fjöllin og ljósaganginn, ásamt samspili hafs og lands sem má finna í innviðum Hörpu.

Eitt af meginmarkmiðum samkeppninnar var að efla vitund um íslenska hönnun og stuðla að auknum sýnileika hennar. Alls bárust 23 tillögur í samkeppnina sem var opin íslenskum hönnuðum.

Höfundar að verðlaunatillögunni eru þær Helga Sigurbjarnadóttir og Kristín Aldan Guðmundsdóttir innanhússarkitektar FHI.
Samstarfsaðilar þeirra um framleiðslu húsgagnanna eru GÁ húsgögn, Stjörnustál, Pelco og Pólýhúðun.

Dómnefndina skipuðu:
Osbjörn Jacobsen arkitekt (Henning Larsen Architects),
Soffía Valtýsdóttir arkitekt (Batteríinu),
Katrín Ólína Pétursdóttir hönnuður (Hönnunarmiðstöð | Félag vöruhönnuða),
Hjalti Geir Kristjánsson húsgagnaarkitekt (Hönnunarmiðstöð |
Félag húsgagna- og innanhússarkitekta) og formaður dómnefndar
Þórunn Sigurðardóttir stjórnarformaður Ago (Portus).

Í umsögn dómnefndar um verðlaunatillöguna kemur fram að hún búi yfir fágaðri og svipmikilli hugmynd sem falli vel að sterkum karakter hússins. Hreyfanleg formin bjóði upp á margvíslega notkun en styrkur tillögunnar felist ekki síst í einfaldleika hennar og sveigjanleika. Hugsað sé fyrir öllum aldurshópum og ólíkum þörfum eftir viðburðum í húsinu og að flókin úrlausnarefni séu leyst á hagkvæman og aðlaðandi hátt.

Harpa verður opnuð í maí á þessu ári og munu þá húsgögnin prýða húsið. Þau verða framleidd hér á landi af íslenskum framleiðendum.