Vinnustofudvöl
04.12.2026–28.02.2027

HalldórEldjárn

Halldór Eldjárn er listamaður þvert á listgreinar en hann hefur komið víða við á ferli sínum sem tónlistarmaður og tónskáld en einnig haldið sýningar á eigin myndlist og hönnun. Í Hönnunarsafni Íslands ætlar hann að kafa ofan í gamlar prentunaraðferðir í bland við tölvutækni gærdagsins og reyna að kortleggja og skrásetja ferlið frá A-Ö. Við sögu koma gömul Macintosh tölva, gömul veðurkort, léreft, arkítektúr, útfjólublátt ljós, terrazzo gólf, teiknivélmenni, japanskur pappír og óinnbundið upplag af bókinni Skuggabox. Þá er aldrei að vita hverju Halldór mun taka upp á en vinna hans í safninu gæti tekið óvænta beygju hvenær sem er. Eitt er þó víst að það verður spennandi að sjá hver útkoman verður.