
Ertu glysgjarn eins og krummi eða kannski algjör vefnaðarmeistari eins og maríuerla? Við æfum okkur í að vefa úr fjölbreyttum efnivið og leitum innblásturs hjá spörfuglum sem eru nú í óðaönn að vefa ungum sínum hreiður um allar koppagrundir.
Við mótum egg úr leir og skoðum hvernig náttúran hefur hannað egg á fjölbreyttan og snjallan hátt – sum eru í felulitum, önnur eru dropalaga svo að þau rúlli ekki fram af klettabrú.
Smiðjan er liður í viðburðarröðinni Skapandi sunnudagssmiðjur fyrir börn og fjölskyldur sem eru mánaðarlega í Hönnunarsafni Íslands á vegum Menningar í Garðabæ. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!
Smiðjan er leidd af hönnunarteyminu ÞYKJÓ.