!hannannah!
05.05.2026–24.05.2026

!hannannah!

Hvað þýðir eiginlega þetta orð hönnun? Hver hannar og hvað er hannað? Á nýrri sýningu sem opnar á HönnunarMars gefst gestum færi á að skyggnast inn í fræðslustarf á Hönnunarsafni Íslands fyrir skólahópa. Árlega koma um 2.500 nemendur í fjölbreyttar leiðsagnir um sýningarsali og skapandi smiðjur í fræðslurýminu. Hér kynnum við fatahönnun í gegnum dúkkulísur og innanhússarkitektúr fyrir ímyndaða íbúa. Tilraunagleði, sköpunarkraftur og hönnunarhugsun eru okkar leiðarljós. Fræðslustarfið er leitt af Sigríði Sunnu Reynisdóttur í samstarfi við ÞYKJÓ.