Opnun
10.03.202617:00

Þaðsemleynistávinnustofunni

Hanna Dís Whitehead er alin upp í Reykjavík og lærði vöruhönnun í Design Academy í Hollandi. Hún býr og starfar á Höfn í Hornafirði þar sem hún er alsæl enda alltaf séð fyrir sér að búa á sveitabæ eða a.m.k. úti á landi.
Hún hefur stimplað sig inn á Íslandi og alþjóðlega með einstökum stíl sem einkennist af stórgerðum formum, leikgleði, efnistilraunum og hugafari sem helst mætti lýsa sem „Af hverju ekki“.
Það hentar Hönnu Dís ekki að hugsa í sýningum. Hún lýsir því þannig að hún gerir einn hlut og svo langar hana mjög líklega til að gera eitthvað allt annað og þannig koll af kolli. Stundum kemur hún aftur að ákveðnum hlut eða aðferð sem heltekur hana og úr verðu sería eða sýning en það er yfirleitt ekki útgangspunkturinn. Hvað með stöku hlutina, módelin og annað sem safnast upp á í vinnustofunni. Getur það verið sýning? Af hverju ekki!

Ath. að miðvikudaginn 11. mars kl. 12:15 verður Hanna Dís með erindi um feril sinn og verk.