Smiðja
14.03.202112:15–15:00

SKAPANDIFATAVIÐGERÐASMIÐJAMEÐÝR

Textílhönnuðurinn og listakonan Ýr Jóhannsdóttir eða Ýrúrarí býður upp á opnar smiðjur í skapandi fataviðgerðum í Hönnunarsafni Íslands.

Smiðjan býður upp á verkfæri, efnivið og aðstöðu fyrir útsaum, prjón, þurr þæfingu, vélsaum og ýmiskonar fræðsluefni um fataviðgerðir. Þátttakendur eru hvattir til að mæta með flíkur sem þarf að lappa upp á eða breyta. Einnig er í boði að taka að sér peysu sem þarfnast viðgerða frá fatasöfnun Rauða Krossins á Íslandi. Ef þáttakendur eru með sína eigin hugmynd að fataviðgerð er um að gera að koma með eigið garn eða efnivið fyrir viðgerðina. Þáttakendur þurfa ekki að hafa neina reynslu af fataviðgerðum til að taka þátt. Gert er ráð fyrir því að ef börn vilja taka þátt komi þau í fylgd fullorðins.

Smiðjurnar eru fríar, fullt aðgengi er í rýmið og geta þáttakendur fengið aðstoð á bæði íslensku og ensku. Vegna mikils áhuga á smiðjunni er ekki lengur hægt að hafa smiðjuna jafnt opna þar sem plássið rýmir takmarkaðann fjölda. Því verða þátttakendur að skrá sig með því að senda tölvupóst á yrj1992@gmail.com

Næstu smiðjur eru:
– Sunnudaginn 14. mars kl 12:15–15 – fullt
– Þriðjudaginn 16. mars kl 17–19:30 – fullt
– Þriðjudaginn 23. mars kl 17–19:30
Fleiri dagsetningar koma síðar!

Verkefnið er hluti af lokaverkefni Ýrar úr Listkennsludeild Listaháskóla Íslands.