Opnun,innflutningsboð,tónlistogtjútt
02.02.202420:00–22:00

Safnanótt,LilýErlaogMartaStaworowska

Velkomin á opnun sýningarinnar Veggplöntur efti Lilý Erlu. Sýningin er “heimsókn” inn í föstu sýninguna Hönnunarsafnið sem heimili. Fólk hefur þörf til að skreyta og breyta svo mörg heimili taka stöðugum breytingum. Lilý Erla er þekkt fyrir textílverk sín en hefur undanfarið verið að þróa veggteikningar sem minna á veggfóður en eru handteiknaðar beint á veggi.

Velkomin í innflutningsboð hjá gullsmiðnum Mörtu Staworowsku. Hún verður í vinnustofudvöl í safninu næstu þrjá mánuði. Marta er lærður landslagsarkitekt og gullsmiður. Hún vinnur talsvert með víravirki og það verður áhugavert fyrir gesti safnsins að fá innsýn í störf hennar næstu vikur.

Gunnar Steinn og félagar bjóða upp á djass á efri hæð safnsins milli 20-21. Samtímis heldur DJ Kjörk uppi stuðinu í innflutningsboðinu hjá Mörtu.