
Petit Pli er þekkt fyrir fatnað sem flettist út og getur fylgt börnum eftir því sem þau stækka, yfir margar fatastærðir.
Fyrirtækið var stofnað í London af Ryan Mario Yasin, sem lauk námi frá Imperial College London í flugvélaverkfræði og Royal College of Art í nýsköpun og hönnun.
Hugmyndin kviknaði út frá rannsóknum Ryans á samanbrjótanlegum formum fyrir smágervitungl, en á sama tíma fylgdist hann með nýfæddum frænda vaxa hratt upp úr fötunum sínum.
Hönnunin er einkaleyfisvarin og hefur meðal annars verið valin ein af Bestu uppfinningum ársins hjá TIME og World Changing Ideas hjá Fast Company, auk þess að hafa hlotið fjölda alþjóðlegra hönnunar- og nýsköpunarverðlauna.
Þegar við komumst að því að Ryan heitir Reynir í íslenska vegabréfinu sínu vakti það vissulega forvitni okkar.
Sýningin opnar kl. 15.00 og í kjölfarið, kl. 16.00, heldur Ryan erindi.
Erindið er flutt á ensku.