Opnun
19.09.202012:00–17:00

100%ULL

Ull er klassískur, náttúrulegur efniviður með óendanlega möguleika. Á sýningunni getur að líta dæmi um vörur úr íslenskri ull sem hönnuðir og handverksfólk er að fást við í dag. Þátttakendur sýningarinnar koma frá ólíkum sviðum hönnunar og handverks en eiga það sameiginlegt að vinna af hugvitssemi með íslensku ullina í sínum afurðum. Þátttakendurnir eru: Ásthildur Magnúsdóttir, vefari; Magnea Einarsdóttir, fatahönnuður; verslunin Kormákur & Skjöldur; fyrirtækið Kula by Bryndís, sem sérhæfir sig í hljóðvistarlausnum; samstarfsverkefnið Ró, sem framleiðir meðal annars dýnur og ullarvinnslufyrirtækið Ístex.