Leiðsögn
22.10.202313:00–13:45

LeiðsögnumsýningunaHönnunarsafniðsemheimili

Á sýningunni Hönnunarsafnið sem heimili má finna í kringum 200 íslenska hönnunagripi en safneign Hönnunarsafns Íslands telur í heild um 5000 muni frá árinu 1900 til dagsins í dag.
Sýningin er sett upp sem grunnmynd af heimili en líkt og á heimilum fólks má sjá þar hlið við hlið hluti frá mismunandi tímabilum. Húsgögn, borðbúnaður, fatnaður, bækur og textíll frá ólíkum tíma koma saman og varpa ljósi á brot af því sem íslenskir hönnuðir og handverksfólk hefur skapað.

Sigríður Sigurjónsdóttir forstöðumaður safnsins sér um leiðsögnina.