meðSigríðiSigurjónsdóttursafnstjóra
17.03.202413:00–14:00

LeiðsögnumHönnunarsafniðsemheimili

Sýningin Hönnunarsafnið sem heimili samanstendur af um 200 íslenskum hönnunargripum frá árinu 1930 til dagsins í dag. 

Sýningin er sett upp sem grunnmynd af heimili en líkt og á heimilum fólks má sjá þar hlið við hlið hluti frá mismunandi tímabilum. Húsgögn, borðbúnaður, fatnaður, bækur og textíll varpa ljósi á brot af því sem íslenskir hönnuðir og handverksfólk hefur skapað. 

Í augnablikinu eru tvær „heimsóknir“ inn á sýninguna. Fólk hefur þörf til að skreyta og breyta svo mörg heimili taka stöðugum breytingum og sama gildir um þessa fastasýningu. Önnur gestasýningin ber yfirskriftina „Skilaboð” þar sem skyggnst er inn í samskipti heimilisfólks í stafrænum rýmum. Hin sýningin nefnist „Veggplöntur“ sem beinir sjónum að skreytingum veggja með handmáluðum teikningum sem minna á veggfóður.

Sigríður Sigurjónsdóttir forstöðumaður safnsins sér um leiðsögnina.