26.04.201919:00–22:00

ÍTALSKTMATARBOÐ

Attenzione!
Ítalskt matarboð innblásið af Róm í tengslum við sýninguna Borgarlandslag verður í Hönnunarsafni Íslands, föstudaginn 26. apríl 2019, kl. 19–22.

Heiðursgestur: Paolo Gianfrancesco, arkitekt og höfundur Borgarlandslags.
Veitingar: Carlos Horacio Gimenez, yfirkokkur veitingastaðarins Apótek.
Veislustjóri: Hlín Helga Guðlaugsdóttir, einn sýningarstjóra sýningarinnar.
Aðgangseyrir: 8.900 kr.
Hámarksfjöldi er 24.

Miða fyrir matarboðið er hægt að nálgast á midi.is Vinsamlega kynnið ykkur áfastan seðil, ekki er boðið upp á aðrar veitingar.

Róm í Reykjavík
Fordrykkur: Ítalsk-íslenska ginið Himbrimi bregður sér í aperitivo búning.
Saga Borgarlandslags: Leiðsögn um sýninguna með áherslu á Róm.
Íslenskt hráefni öðlast ítalskt líf í höndum Carlos Horacio Gimenez:

Antipasto:
Supplì al telefono con coda alla vaccinara
Tartara di merluzzo con capperi, arancia e origano fresco
Tuorlo con carciofi, spuma di pecorino e tartufo nero
Djúpsteiktar hrísgrjónabollur í tómatsósu, fylltar með mozzarella og uxahala
Þorsktartar með kapers, appelsínu og fersku óreganó
Ætiþistill alla Romana með eggjarauðu og Pecorino Romano froðu

Primo:
Paccheri rigati alla gricia
Pasta alla gricia

Secondo:
Agnello con broccoli ripassati, vinaigrette di limone e pinoli tostati
Lamb með brokkolí, sítrónu vinaigrette og ristuðum furuhnetum

Dolce:
Ricotta morbida, sorbetto agli agrumi e pasticcino al pistacchio
Ricotta krem, blóðappelsínusorbet og pistasíu makkarónur

Sögur af Róm og Reykjavík verða bornar fram á milli rétta og gestum boðið að flögra um sýninguna.