
Sigríður Sunna Reynisdóttir er fræðslufulltrúi Hönnunarsafnsins og listrænn stjórnandi ÞYKJÓ hönnunarteymis. Hún segir frá sýningunni !hannannah! sem opnaði á HönnunarMars og veitir innsýn í fræðslustarf á Hönnunarsafninu. Hvernig er hægt að hanna fræðsluverkefni fyrir börn um hönnun? Hvernig opnum við glugga inn í ólíkar greinar hönnunar og handverks á safninu?
Árlega koma um 2500 nemendur á Hönnunarsafnið í fjölbreyttar leiðsagnir um sýningarsali og á skapandi smiðjur í fræðslurýminu. Síðustu ár hefur staðið yfir átaksverkefni í fræðslu á safninu í samstarfi við Menntamálaráðuneytið í tengslum við Hönnunarstefnu Íslands til ársins 2030.