
Hátíðaropnun á sýningunni !hannanannah! á HönnunarMars 2026.
Á sýningunni fá gestir smakk af fræðsluverkefnum sem hafa verið hönnuð fyrir skólahópa sem koma í heimsóknir á safnið. Þar kennir ýmissa grasa, verkefni sem kynna fatahönnun, húsgagnahönnun, upplifunarhönnun og arkitektúr.