Innflutningsboð
04.12.202616:00

HalldórEldjárn

Halldór Eldjárn listamaður vinnur þvert á listgreinar og hefur komið víða við á ferli sínum sem tónlistarmaður og tónskáld en einnig haldið sýningar á eigin myndlist og hönnun.

Á meðan á vinnustofudvöl stendur geta gestir verslað verk beint við listamanninn og skyggnst inn í sköpunarferlið og handverkið sem býr að baki.

Halldór ætar að kafa ofan í gamlar prentunaraðferðir í bland við tölvutækni gærdagsins og reyna að kortleggja og skrásetja ferlið frá A-Ö. Við sögu koma gömul Macintosh tölva, gömul veðurkort, léreft, arkítektúr, útfjólublátt ljós, terrazzo gólf, teiknivélmenni, japanskur pappír og óinnbundið upplag af bókinni Skuggabox. Þá er aldrei að vita hverju Halldór mun taka upp á en vinna hans í safninu gæti tekið óvænta beygju hvenær sem er.

Halldór mun dvelja við störf sín í safninu þar til í lok febrúar.