Fjölskyldusmiðja
01.03.202613:00–15:00

Gæludýraleikföng
FjölskyldusmiðjameðÞYKJÓ

Mjá! ÞYKJÓ Hönnunarteymi leiða börn og fjölskyldur inn í leikfangahönnun, á smiðju þar sem við skoðum leikföng fyrir gæludýr. Kannski viltu bjóða kisunni þinni upp á nýtt sérhannað dót til að eltast við? Kannski þarf hundurinn hans afa að hressa sig við – eða jafnvel hamstur nágrannans? Hvað þurfum við að hafa í huga þegar við gerum svona leikföng? Hvað virkar vel? Komið og lærið og leikið!

ÞYKJÓ er hönnunarstofa sem hefur hlotið athygli hér heima og erlendis fyrir metnaðarfull og fjölbreytt verkefni fyrir börn á sviði innsetninga, vöruhönnunar og upplifunarhönnunar. Þau eru þekkt fyrir Hljóðhimna í Hörpu, húsgögn og vöruhönnun í Menningarhúsum Kópavogs og Tulipopland á Keflavíkurflugvelli. ÞYKJÓ hafa hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir störf sín, þeirra á meðal eru Hönnunarverðlaun Íslands (2024), YAM Awards (2023) og SVEF verðlaunin (2021).