Fyrirlestur
04.04.201917:30

GANGA

Í tengslum við sýninguna Borgarlandslag stendur Hönnunarsafn Íslands fyrir fyrirlestrum undir yfirskriftinni ‘Listin að ferðast’. Arkitektinn Massimo Santanicchia ríður á vaðið en hans uppáhalds ferðamáti er að ganga.

Fyrirlesturinn hans fer fram fimmtudaginn 4. apríl kl. 17 í Hönnunarsafni Íslands á Garðatorgi. Fyrirlesturinn er óður til jarðarinnar og borganna. Að ganga býður upp á andrúm til umhugsunar, tíma til að taka inn umhverfið, skynja mannlífið, fegurðina sem og þær ógnir sem við stöndum frammi fyrir. Það er svo geggjað að ganga.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku og aðgangseyrir að safninu gildir.