Innflutningsboð
13.02.202616:00

Flétta

Við bjóðum í innflutningsboð í tilefni af því að vöruhönnuðirnir Hrefna Sigurðardóttir og Birta Rós Brynjólfsdóttir sem saman mynda tvíeykið Fléttu eru að flytja inn í vinnusofudvöl í safninu. Það sem einkennir verk þeirra eru sköpunar- og  leikgleði í bland við gagnrýna hugsun varðandi sóun og neysluvenjur. Svo eru þær stuðpinnar og við hlökkum til að hafa þær hér hjá okkur fram að og yfir HönnunarMars.