Fjölskyldusmiðja
06.09.202613:00–15:00

Eldblómajelly

Slímugur – en bragðgóður!

Hönnuðurinn og dansarinn Sigríður Soffía Níelsdóttir leiðir fjölskyldur inn á lendur matar- og vöruhönnunar. Börn og fjölskyldur gera sitt eigið Eldblóma jelly til að taka með sér heim að smiðju lokinni. Hvernig vilt þú hafa þína jellymola í laginu? Kassalaga, kúlur eða eins og skínandi demanta?

Matarhönnun Eldblóma lítur senn dagsins ljós, en þróunin hófst í rannsóknardvöl Siggu Soffíu hér hjá okkur í Safninu á Röngunni. Þetta heillandi verkefni teygir sig þvert á greinar, frá danssýningum á leiksviði, til flugeldasýninga á næturhimni, landslagsarkitektúrs á jörðu niðri og allt þess á milli! Jelly Eldblóma er unnið úr heilnæmum innihaldsefnum; vestfirskum rabbarbara, aðalbláberjum og ætum blómum.

Þetta er fyrsta fjölskyldusmiðja vetrarins í Hönnunarsafni Íslands í röðinni Skapandi sunnudagar. Mánaðarlega opnum við glugga inn í ólíka króka og kima hönnunar og listhandverks. Smiðjurnar eru ávallt leiddar af fagfólki á sínu sviði. Viðburðirnir eru hluti af menningardagskrá Garðabæjar, aðgangur er ókeypis og öllum opinn.