21.08.201918:00–20:00

DENVERDÝFA

Nú dýfum við okkur til Denver, Colorado í tengslum við sýninguna Borgarlandslag í Hönnunarsafni Íslands eftir Paolo Gianfrancesco.

Denver Dýfa er hluti af röð viðburða og fyrirlestra sem safnið stendur fyrir í tengslum við sýninguna Borgarlandslag. Á meðan á sýningunni stendur er sex völdum borgum gert hátt undir höfði með ævintýralegum viðburðum. Þar deila borgarbúar Reykjavíkur af erlendum uppruna sögum sínum og fjalla um borg upprunalands síns í gegnum mat, tónlist og fleira. Í vor brugðum við okkur til Rómar í gegnum bragðlaukana og til Belgrad með serbneskri tónlistarveislu. Nú er framundan hugleiðsluferðalag til Denver, Colorado,

Tristan Elizabeth Gribbin býður gestum í dýfu til Denver ásamt hugleiðsluferðalagi sérsniðnu fyrir nútíma lífstíl. Þáttakendur munu öðlast verkfæri til hugleiðslu sem hægt er að grípa til við ýmsar aðstæður. Einnig munu þeir fá að prófa hugleiðslu í sýndarveruleika frumkvöðlafyrirtækisins Flow og fá leiðsögn um sýninguna Borgarlandslag með Paolo Gianfrancesco. Allt þetta með ofurfæðisívafi – hvað annað!

Gestur: Tristan Elizabeth Gribbin, hugleiðslukennari, frumkvöðull og fyrrverandi leikkona var búsett í Denver um árabil og sækir þangað andlegan innblástur frumkvöðlafyrirtækis síns Flow Meditation for Modern Life. Fyrirtækið hefur þróað hugleiðsluaðferðir sem nýtir nútímatækni svo sem snjallforrit og sýndarveruleika.Tristan settist að á Íslandi árið 1995.
Veitingar: Áslaug Snorradóttir, ljósmyndari og listakokkur
Veislustjóri: Hlín Helga Guðlaugsdóttir, einn sýningarstjóra sýningarinnar.
Leiðsögn um sýninguna (á ensku): Paolo Gianfrancesco, arkitekt og höfundur Borgarlandslags.

Aðgangseyrir: 3.900 kr.
Hámarksfjöldi gesta er 25.
Leiðsögn um sýninguna, smakk af Denver, hugleiðslunámskeið og léttar veitingar.
Miða fyrir boðið er hægt að nálgast á midi.is