Innflutningsboð
20.09.202613:00

CathrineOxleypappírsblómameistari

Velkomin í innflutningsboð

Hönnuður í vinnustofudvöl er Catherine Oxley frá Kanada sem nú er búsett í Reykjavík. Hún skapar handgerð pappírsblóm undir vinnuheitinu BOUQ Paper Flowers, þar sem fínlegur kreppappír er mótaður í blóm sem búa yfir blæbrigðum, hreyfingu og útliti lifandi blóma.

Verk sín byggir hún á næmri og ítarlegri athugun, færni sem hún hefur þróað með sér í gegnum meira en tvo áratugi í kvikmynda- og sjónvarpsgeiranum. Þar starfaði Oxley undir listamannsnafninu Catherine Burdon (The Brink of War, Molly’s Game, Breach) og lærði að lesa látbragð, andrúmsloft og spennu sem getur falist í kyrrstæðu augnabliki. Þessa eiginleika færir hún inn í hvert blóm.

Við lok dvalarinnar föstudaginn 27. nóvember verður haldin uppskeruhátíð sem verður án efa mjög blómleg.