
Catherine Oxley skapar handgerð pappírsblóm undir vinnuheitinu BOUQ Paper Flowers. Hún mótar blóm úr fínlegum kreppappír og nær að fanga blæbrigði, hreyfingu og útliti lifandi blóma. Hún heillaðist strax af ferlinu sem þessi umbreyting krefst.
Hún grannskoðar og rýnir af næmni í viðfangsefnið, færni sem hún hefur þróað með sér í gegnum meira en tvo áratugi í kvikmynda- og sjónvarpsgeiranum. Þar starfaði Oxley undir listamannsnafninu Catherine Burdon (The Brink of War, Molly’s Game, Breach) og lærði að lesa látbragð, andrúmsloft og spennu sem getur falist í kyrrstæðu augnabliki. Þessa eiginleika færir hún inn í hvert blóm.
Catherine er kanadísk og hefur búið í Reykjavík síðastliðin fjögur ár.
Við lok dvalarinnar föstudaginn 27. nóvember verður haldin uppskeruhátíð sem verður án efa mjög blómleg.