Vinnustofudvöl
17.06.2019–13.10.2019

MORRA
Fatahönnuður

Fatahönnuðurinn Signý Þórhalldóttir kemur sér fyrir með vinnuaðstöðu í safnbúð Hönnunarsafns Íslands og mun halda áfram að þróa vörulínu sína MORRA. Í dag samanstendur MORRA af silkislæðum og veggmyndum á pappír þar sem íslenska flóran er í aðalhlutverki, og nú munu nýjar vörur bætast við í sumar.

Í aldaraðir hefur flóran reynst myndlistarmönnum og hönnuðum óendaleg uppspretta. Við hjá Hönnunarsafni Íslands stóðum í þeirri trú að nafnið Morra væri tilvísun í Morris (William Morris). Það var víst ekki hugmyndin heldur sprettur nafnið frá sögninni að marra. Það er samt ekki ólíklegt að um sé að ræða ómeðvitaða tilvísun í Morris sem frægur er fyrir blómamynstur sín. Hann ferðaðist um Ísland árin 1871 og 1873 og kallaði landið „rómantískustu eyðimörk í heimi“. Íslenska flóran hefur lítið breyst frá því þá, þó svo að landslagið í framleiðslu og hönnunarferlið hafi gjörbreyst með nýrri prent- og tölvutækni.

Signý útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands með BA-gráðu í fatahönnun árið 2011. Eftir ústskrift sótti hún sér reynslu til New York og London hjá hönnuðum eins og Zöndru Rhodes og Vivienne Westwood, þar sem hún starfaði í þrjú ár við að hanna fatnað og munstur fyrir Japansmarkað. Signý leitast við að starfa á mörkum fata- og prenthönnunar.

Ljósmyndir: Vigfús Birgisson.