Smástundarmarkaður
06.10.201812:00–17:00

ASWEGROW

Handhafar Hönnunarverðlauna Íslands 2016, barnafatamerkið As We Grow verður með sölu á sýnishornum laugardaginn 6. október frá 12–17. Peysur og kjólar frá 5.000 kr., kápur frá 5.500 kr., buxur og skyrtur frá 3.000 kr. Það verður líf í tuskunum.

Í umsögn dómnefndar um As We Grow segir: Með vörulínunni tvinna eigendur As We Grow saman fagurfræði, hefðum og nútíma í endingargóðan fatnað sem bæði vex með hverju barni og endist á milli kynslóða. As We Grow byggir á ábyrgum umhverfissjónarmiðum og afstöðu gagnvart líftíma og endingu framleiðsluvöru á tímum ofgnóttar. Tímalaus einfaldleiki hönnunar og einstök gæði vöru hafa ásamt samfélagslegri ábyrgð og metnaaðarfullri stefnu í umhverfismálum skapað fyrirtækinu sérstöðu heima og heiman.