Smiðja
16.09.201813:00–15:00

RITSMIÐJA

Í tengslum við sýninguna Undraveröld Kron by Kronkron leiðir Bergrún Íris Sævarsdóttir ritsmiðju fyrir börn á aldrinum 9–13 ára sunnudaginn 16. september kl. 13–15.

Hvert hafa skórnir þínir ferðast og í hvers konar ævintýrum gætu þeir lent? Kafað er í hugmyndaleit og persónusköpun og hvernig beinagrind að sögu verður til. Vel er gætt að styrkleikum hvers barns þegar það stígur sín fyrstu skref sem rithöfundur.

Smiðjan er í boði Hönnunarsafns Íslands.