Smiðja
02.04.202313:00–15:00

KERAMIKSMIÐJA

Ada Stańczak keramikhönnuður leiðir smiðju fyrir alla fjölskylduna þar sem gestir fá tækifæri til að þrykkja náttúrlegt efni svo sem steina, strá og greinar í leir. Þátttakendur geta einnig gert sitt eigið leirtau og lært einfaldar aðferðir við að pressa leir í mót. Allt efni verður á staðnum en gestir hvattir til að koma með efni úr náttúrunni til að pressa í leirinn. Að lokinni smiðjunni munu gripirnir verða brenndir og gljáðir en að þremur vikum liðnum geta gestir sótt gripina sína í safnið. Ada hefur frá því í febrúar dvalið í vinnustofu Hönnunarsafnsins þar sem gestir geta fylgst með henni að störfum.