Námskeið
24.09.201916:00–18:00

HÖNNUNARSKÓLINN

Hönnunarskólinn, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands hefst 24. september nk.

Hefst: 24. september
Tími: Þriðjudaga, kl. 16–18
Staðsetning: Hönnunarsafn Íslands
Lengd: 10 vikur
Kennslustundir: 20
Aldur: 13–16 ára
Kennarar: Sigríður Sigurjónsdóttir, Signý Þórhallsdóttir, Halla Hákonardóttir, Embla Vigfúsdóttir, Björn Steinar Blumenstein, Kristján Örn Kjartansson og Lóa Hlín Hjálmtýrsdóttir

Langar þig að kynnast því hvernig hönnuðir og hugmyndasmiðir vinna? Í Hönnunarskólanum fá þáttakendur innsýn inn í störf og aðferðarfræði hönnuða. Í gegnum samtöl, skissur og frumgerðir gefst innsýn inn í það hvað felst í því að vera arkitekt, spilahönnuður, vöruhönnuður, fatahönnuður og matarhönnuður. Sjö hönnuðir koma að kennslu á námskeiðinu sem er byggt þannig upp að í fyrstu tvö skiptin er unnið arkitektaverkefni, næstu tvö spilahönnunarverkefni og þannig koll af kolli.

Verð: 39.900 kr – skráning er á klifid.is