Skapaðuheilthúsívetrarfríinu
20.02.202413:00–15:00

Heimurinnheima

Boðið er upp á þriggja daga námskeið í vetrarfríinu 20., 21. og 22. febrúar frá kl 13-15 fyrir börn á aldrinum 9-12 ára.

Til að tryggja sér pláss þarf að skrá sig og greiða 3000 kr efnisgjald á tix.is

www.tix.is/is/event/16941/

Þátttakendur fá afhent módel af húsi sem þau hanna inn í fyrir ímyndaðan íbúa með tilliti til persónuleika hans og þarfa. Nemendur fá að spreyta sig á aðferðum í hönnun en hver dagur verður með ólíkar áherslur. Mikilvægt er að komast alla þrjá dagana  til að klára húsið og fá það með sér heim. Verkefnið miðar að því að setja sig í spor hönnuðar, virkja sköpunarkraftinn, hugsa með höndunum, sjá möguleika, kynnast skala og módelgerð.

Hönnuðirnir Auður Ösp Guðmundsdóttir og Kristín María Sigþórsdóttir mótuðu námskeiðið upphaflega fyrir grunnskólaheimsóknir sem hafa notið mikilla vinsælda.