Fjölskyldusmiðja
04.02.202413:00–15:00

Gafall,gúmmíteygjaogkökukefli!

Hönnunarsafnið býður upp á fjölskyldusmiðju sem einkennist af tilraunum og leikgleði. Lilý Erla mun kynna ýmsar skissu aðferðir með óvenjulegum verkfærum og þannig leiða þátttakendur í ferðalag – hugarflug sem óvíst er hvar endar. Hafið þið prufað að teikna með kökukefli eða karamellubréfi? En gaffli eða gúmmíteygjum? Komið gjarnan með smámuni að heiman sem mega við því að baða sig í bleki og málningu og lenda í nýjum ævintýrum.

Lilý Erla Adamsdóttir er þekkt fyrir textílverk sín en hefur undanfarið verið að þróa veggteikningar í vinnustofudvöl á Hönnunarsafninu. Sýning hennar Veggplöntur opnar á Safnanótt, þann 2. febrúar, en hún er “heimsókn” inn í föstu sýninguna Hönnunarsafnið sem heimili.